Solution verkefnið býður upp á námskeið í beitingu samræða til að efla gagnrýna hugsun. Námskeiðið hentar kennurum sem sinna kennslu tengdri sjálfbærni á unglingastigi og hafa svigrúm til að halda minnst mánaðarlega samræðutíma.
Nám sem býr nemendur undir framtíðina.
Gagnrýnin hugsun felur í sér fjölþætta hæfni. Hún er grundvöllur upplýstrar ákvarðanatöku hvort sem er í persónulegu lífi sem og við mat á upplýsingum í flóknum málum, ekki síst þar sem tilfinningar eða hagsmunir hafa áhrif. Þetta á ekki síst við nú þegar við stöndum frammi fyrir viðamiklum áskorunum allt frá loftslagshamförum til lýðræðishnignunar. Til að búa ungt fólk undir framtíðina er gagnrýnin hugsun oft nefnd til sögunnar og kemur t.a.m. við sögu í lykilhæfni og grunnþáttum menntunar aðalnámsskrár grunnskóla.
En hvernig eflum við gagnrýna hugsun? Að hvaða leyti er hún okkur eðlislæg, hvers vegna erum við svona oft ósammála, og hvernig getum við nýtt samræður til gagnrýnnar hugsunar?
Innihald, fyrirkomulag og útkoma
Farið verður í gegnum það sem vitað er um hugsun mannfólks, þær hugsanavillur sem valda því að við föllum fyrir ranghugmyndum eða falsfréttum, og gagnreyndar aðferðir við að efla gagnrýna hugsun fólks.
Námskeiðið hefst á tveggja daga vinnustofu í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í lok ágúst 2026 og fylgja svo mánaðarlegir fjarfundir þar sem þátttakendur deila reynslu sinni og fá endurgjöf frá öðrum þátttakendum og leiðbeinanda. Í heild má gera ráð fyrir að námskeiðið taki alls 40-50 klst., dreift yfir veturinn.
Að loknu námskeiði munu þátttakendur:
- geta lýst helstu kenningum um rökhugsun auk ýmissa rök- og hugsanavilla,
- vera fær um að skipuleggja og útfæra samræðukennslu sem eflir gagnrýna hugsun, og
- geta metið lærdóm nemenda sinna og gagnsemi aðferðanna.
Umsjón
Solutions verkefnið er Erasmus+ verkefni sex samstarfsaðila sem Ólafur Páll Jónsson og Edda Elísabet Magnúsdóttir, bæði kennarar á Menntavísindasviði HÍ, eru aðilar að. Leiðbeinandi verður Martin Jónas B. Swift, nemandi í uppeldis- og menntunarfræðum við Menntavísindasvið.
Skuldbinding og skráning
Þátttaka á námskeiðinu er gjaldfrjáls en gert er ráð fyrir skuldbindingu út veturinn. Hámarksfjöldi á námskeiðinu eru 12 þátttakendur en forgangur verður veittur ef tveir eða fleiri kennarar koma úr sama skóla. Eins ef skólinn er á svæði með lága félagsstöðu en Solutions verkefnið miðar sérstaklega að því að styðja við slík samfélög.
Hafið samband við Martin (mjb3@hi.is) fyrir frekari upplýsingar og skráningu.